fim., 27. ágú.
|Suzukiskóli Sigrúnar
Bambaló 0-1 árs 27. ágúst kl. 10
Tónlistartímar fyrir þriggja mánaða til eins árs börn og foreldra þeirra. Kennt í Síðumúla 29.

Tíma- og staðsetning
27. ágú. 2020, 10:00 – 10:40
Suzukiskóli Sigrúnar, Síðumúli 29, Reykjavík, Iceland
Um tímann
Ath! Vegna samkomutakmarkana eru nokkrar breytingar á Bambaló tímum næstu vikur. Þetta er gert til þess að gæta fyllsta öryggis.
- Aðeins 6 pláss eru í hvern tíma og aðeins einn fullorðinn má koma með hverju barni.
- Fullorðnir þurfa að gæta að tveggja metra reglunni sín á milli.
- Í stað þess að sitja þétt í hring erum við dreifð um rýmið, hvert foreldri og barn er með "sína stöð" með sér kassa með dóti, hljóðfærum og námsgögnum sem eru sótthreinsuð á milli tíma.
- Allt rýmið er þrifið á milli hópa og snertifletir sótthreinsaðir.
Þú skráir þig í tímann hér á síðunni og færð staðfestingarpóst. Greiðsla fer fram í lok tímans, hægt er að borga með reiðufé eða leggja inná reikning. Stakur tími kostar 2.500 kr, 5 skipta kort kostar 10.000 kr. og 10 skipta kort kostar 17.000 kr.
Bambaló eru tónlistartímar fyrir börn 0-3 ára og foreldra þeirra.
- Í tímunum lærum við skemmtileg lög, leiki og æfingar sem efla málþroska, hreyfigetu, taktskyn og tóneyra.
- Tímarnir eru ekki síður frábær vettvangur fyrir foreldra að eyða tíma með börnunum sínum, læra eitthvað skemmtilegt sem hægt er að gera saman heima og hitta aðra foreldra ungra barna.
- Tímarnir byggja m.a. á kennsluaðferðum Suzuki og ungbarnanáminu „Early Childhood Education“.
- Hver tími er um 40 mínútur. Eftir kennslustundina gefst tími fyrir foreldra að fá sér kaffi og spjalla.
- Þetta eru opnir tímar, sem þýðir að hægt er að koma í þá tíma sem hentar og borga bara fyrir þá. Hægt er að kaupa "klippikort" með afslætti. Vinsamlegast notið skráningarformið hér að neðan til að skrá ykkur í hvern og einn tíma.
Bambaló skiptist í þrjá hópa. Aldursskiptingin er bara viðmið og það er allt í lagi að skrá barn í hóp sem eru ekki akkúrat aldurshópur barnsins en hentar betur af ýmsum ástæðum.
Skráningarmiðar
Price
Quantity
Total
Bambaló 0-1 árs 27. ágúst
ISK 0
Bambaló tónlistarstund
ISK 0
Sold Out