lau., 27. jún.
|Suzukiskóli Sigrúnar
Bambaló 1-2ja ára 27. júní kl. 11
Tónlistartímar fyrir 1-2ja ára börn og foreldra þeirra. Kennt í Síðumúla 29.
Registration is Closed
See other events
Tíma- og staðsetning
27. jún. 2020, 11:00 – 11:40
Suzukiskóli Sigrúnar, Síðumúli 29, Reykjavík, Iceland
Um tímann
Ath! Vegna samkomutakmarkana eru nokkrar breytingar á Bambaló tímum næstu vikur. Þetta er gert til þess að gæta fyllsta öryggis.
- Aðeins 6 pláss eru í hvern tíma og aðeins einn fullorðinn má koma með hverju barni.
- Fullorðnir þurfa að gæta að tveggja metra reglunni sín á milli.
- Í stað þess að sitja þétt í hring erum við dreifð um rýmið, hvert foreldri og barn er með "sína stöð" með sér kassa með dóti, hljóðfærum og námsgögnum sem eru sótthreinsuð á milli tíma.
- Allt rýmið er þrifið á milli hópa og snertifletir sótthreinsaðir.
Bambaló eru tónlistartímar fyrir börn 0-5 ára og foreldra þeirra. Hópunum er oftast skipt í 0-1 árs, 1-2ja ára, 2-3ja ára og 3-5 ára. Aldursskiptingin er bara viðmið og það er allt í lagi að skrá barn í hóp sem eru ekki akkúrat aldurshópur barnsins en hentar betur af ýmsum ástæðum.
- Í tímunum lærum við skemmtileg lög, leiki og æfingar sem efla málþroska, hreyfigetu, taktskyn og tóneyra.
- Tímarnir eru ekki síður frábær vettvangur fyrir foreldra að eyða tíma með börnunum sínum, læra eitthvað skemmtilegt sem hægt er að gera saman heima og hitta aðra foreldra ungra barna.
- Tímarnir byggja m.a. á kennsluaðferðum Suzuki og ungbarnanáminu „Early Childhood Education“.
- Hver tími er um 40 mínútur. Eftir kennslustundina gefst tími fyrir foreldra að fá sér kaffi og spjalla.
- Þetta eru opnir tímar, sem þýðir að hægt er að koma í þá tíma sem hentar og borga bara fyrir þá. Hægt er að kaupa "klippikort" með afslætti. Vinsamlegast notið skráningarformið hér að neðan til að skrá ykkur í hvern og einn tíma.
Skráningarmiðar
Price
Quantity
Total
Bambaló 1-2ja ára 27. júní
ISK 0
Bambaló tónlistarstund
ISK 0
0ISK 0
Total
ISK 0