sun., 09. maí
|Síðumúli 29
Bambaló 1-2ja ára sun 9. maí kl. 9:30
Tónlistartímar fyrir 1-2ja ára börn og foreldra þeirra. Kennt í Síðumúla 29.

Tíma- og staðsetning
09. maí 2021, 09:30 – 10:10
Síðumúli 29, Síðumúli 29, Reykjavík, Iceland
Um tímann
Þú skráir þig í tímann hér á síðunni og færð staðfestingarpóst. Greiðsla fer fram í byrjun eða lok tímans, tekið er við reiðufé og einnig er hægt að borga með korti. Stakur tími kostar 2.500 kr, 5 skipta kort kostar 10.000 kr. og 10 skipta kort kostar 17.000 kr.
- Í tímunum lærum við skemmtileg lög, leiki og æfingar sem efla málþroska, hreyfigetu, taktskyn og tóneyra.
- Tímarnir eru ekki síður frábær vettvangur fyrir foreldra að eyða tíma með börnunum sínum, læra eitthvað skemmtilegt sem hægt er að gera saman heima og hitta aðra foreldra ungra barna.
- Tímarnir byggja m.a. á kennsluaðferðum Suzuki og ungbarnanáminu „Early Childhood Education“.
- Hver tími er um 40 mínútur. Eftir kennslustundina gefst tími fyrir frjalsan leik og spjall foreldra.
- Þetta eru opnir tímar, sem þýðir að hægt er að koma í þá tíma sem hentar og borga bara fyrir þá. Hægt er að kaupa "klippikort" með afslætti. Vinsamlegast náið ykkur í skráningarmiða hér að neðan til að skrá ykkur í hvern og einn tíma.
Aldursskiptingin er bara viðmið og það er allt í lagi að skrá barn í hóp sem eru ekki akkúrat aldurshópur barnsins en hentar betur af ýmsum ástæðum.
Ef þú deilir myndum eða myndböndum úr tíma, endilega merkið @suzukiskolisigrunar og #bambaló
Ekki birta myndir af öðrum nema með leyfi.
Endilega finnið facebook hópinn "Bambaló tónlistartímar hjá Sigrúnu" á facebook og takið þátt í umræðum.